Schön
Myndir
18.06.2008 20:33:05 / foli

EM

svíar eru úr leik


BJÚTÍFÚLL!!!
:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 21:05:44 / foli

þrír mánuðir – enn á lífi

já, hvað hef ég gert frá Parísarferð minni í Febrúar??

Sko fyrst kom ég til Íslands, vann í mánuð og gerði ágætar skvettuferðir með Ásdísi frænku (það er rétt sem Mutti segir, hún hefur greinilega slæm áhrif á mig)

 

 

Eftir mánaðardvöl á Klakanum, flaug ég til Berlínar og var þar í 5daga, áður en að við Verena keyrðum þvert í gegnum landið til Karlsruhe, tæpir 8tímar þar undir stýri!!

 

 

En svo byrjaði veislan, skóli, skóli, skóli..... og er sú veisla enn í gangi. En ég ákvað þó að taka mér nokkura daga hvíld frá þessu stressi, en var theChrismanetor á leið hingað og tók ég hann í skoðunarferðir út fyrir landsteina!!!

 


að skoða veðurspár fyrir brottför!!


Krissin að njóta Pizzunar í heimabæ mínum



Bjór í sólskininu í Perugia


ég kæmist ekki upp með þetta í Þýzkalandi




náttlega skransaði marr aðenis í Perugia líka


við Stefano flugum partýið af stað





fyrir utan Assisi


Assisi


svo læra menn að slappa af


svo var það Flórens-borg


enn og aftur, mæli ég með þessari borg




og ísnum líka


svo kom rómarborg....


fallegasti brunnur í heimi


fallegasti maður í heimi



kongar Perugia í keisarans Róm



mergjuð bygging


ég elska þessa borg




Coloseo er ekki verra, séð að innan

ég fæ aldrei leið af Rómarborg


mögnuð Panorama




Þegar að rómantík verður að Erótík, þá.....



Svo kvaddi okkur ítalía með því að fara yfir 30gráður


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 12:14:47 / foli

Prófstress!

Já Prófstressið! Getur ekki verið hollt fyrir mann. En á því hef ég einfalda lausn – einfaldlega stressa sig ekkert upp!!
Því ákvað ég að skreppa aðeins úr bænum síðust helgi. Róa sig aðeins niður og ekki skemmir fyrir að hitta Verenu

 

Foto

 
Þetta er eitthvað svo einfalt að ferðast hérna. Ég þurfti ekki að koma mér á einhvern flugvöll 2-3tímum fyrir brottför, þurfti ekki að standa í check-in biðröð né ganga í gegnum vopnaeftirlit. Ég einfaldlega fór á lestastöð, mínútu áður en að lestin mín kom, steig upp í hana og 3tímum seinna var ég í París.
Þá þurfti ég ekki að bíða eftir farangri eða koma mér í miðbæjinn, ég var þegar í miðbæ Parísar, reyndar þurfti ég að koma mér uppá hótel, en þá skipti ég um spor og fór með neðanjarðarlestinni um 4stöðvar til austurs og BANG!! ég var kominn.

 
Á föstudeginum byrjuðum við á því að fara á Musée d'Orsay, það var svosem ágætt safn, skemmtilegast var samt að sjá vanGogh myndirnar, sérstaklega vegna þess að þær eru flestar málaðar í Arles, þar sem ég var í haust (sjá Blogg
Furto d'arte)


Eftir safnið, löbbuðum við Champs-Élysées en þar fékk ég mér eina alvöru fransk-HotDog og gengum við svo að Sigurboganum!

 

 

Sem verðandi Arkitekt varð ég nú að fara að skoða viðskiptahornið laDéfence, þar eru háar byggingar og La Grande Arche de la Fraternité.

Um kvöldið fórum við svo að borða á indjánastað í Place de la Bastille

 

Place de la Bastille

--

hvað um það.. á laugardag kom svo DAGURINN, við byrjum á því að kíkkja á tákn borgarinnar, Eiffelturninn!!

Foto

Það er ótrúlegt að gangau undir þetta risastálvirki hugsandi að þetta þessu járnrusli hafi verið hægt að hrúga svona upp fyrir 120árum síðan! Magnað, sérstakleg frá Trocadéro séð.

 Foto

Foto


Foto


Eftir turninn förum við að skoða kirkjur, við sjáum Saint-Germain-des-Prés og NotreDame kirkjuna, sennilega var leiðinlegt að skoða þessar kirkjur með mér þar sem að ég var nýbúinn að ljúka prófi í byggingarsögu og þaldi því upp hvert eitt og einasta smátriði þessara kirkja, þangað til að ég varð slegin (í svona 3ja sinn)

 

Foto
NotreDame


Paris-Saint Germain


Þar á eftir var okku boðið í kaffi og kleinur hjá frú Lísu, Mona tók á móti okkur með brosi á vör í Lovre-safninu, en það er ótrúlegt safn, þar gæti maður gengið um í heila viku án þess að sjá sama hlutinn tvisvar. Það sem heillaði mig hinsvegar mest voru múmmíurnar

 

Foto

Foto

 

Það kvöld fórum við svo að borða í sennilega krúttlegasta svæði Parísar (að mínu mati) en það er st.Germain hlutinn, þar er mikið af resturauntum og eftir þessa tvo daga varð ég bara orðinn býsna góður í frönsku, hlakka til að kíkkja aftur :)

 


Ekki þykir stórum konum einsog Verenu, litlir hlutit einsog Eiffelturninn merkilegir

 



» 7 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 22:25:14 / foli

Er hægt að dæma fólk útfrá útliti??

“Þú verður að kynnast manneskjunni, áður en að þú dæmir hana”
Þessa setningu hafa allir heyrt frá mömmu sinni!

Þetta er falleg hugsun, en er hún alveg sönn? 
Svo virðist bara einfaldlega vera, að fyrstu hugrif reynast alveg ótrúlega oft vera sönn! 
Á augabrúnum má sjá hvort fólk sé þungt í skapi eða ekki, það sést á augum og augnsvipi hvort það sé vingjarnlegt eða eigingjarnt og út frá brosi má vega og meta hvort viðkomandi sé traustur eða undirförull. 

Hvað með vaxtarlag! Eru feitir latir? Kannski ekki í öllum tilfellum, margt virðist benda til þess að þetta hafi eitthvað með gen að gera, samt sem áður – það geta allir lést sem það vilja, það eru bara ekki allir sem vilja það eða nenna. 

Stundum vellti ég því fyrir mér; hvar væri ég ef ég hefði ekki þetta útlit?
Sennilega leiddi það til minna sjálfstrausts, sem líka leiðir til minni sjarma!
Þeir sem ekki eru öruggir með sig virka ógreindari á fólk, það er samt ekki endilega tilfellið, fólk fær bara þá tilfinningu!

Ég til að mynda er ekki bara clever, heldur hef ég líka útlit gáfaðs mans, þess vegna fá mínar hugmyndir og skoðanir oft á tíðum betri viðtökur en hjá öðrum -  það gefur mér dirfskuna til að koma með eitthvað nýtt, hugsa lengra og gera eitthvað sem að maður án sjálfstraust myndi ekki trúa sér til. 

Það þarf ekki endilega að vera, að maður með lítið sjálfstraust lifi verra lífi – það er hvortið er ekki ætlast til neins af honum, engin pressa!! Sem reyndar hljómar frekar tilbreytingarlaust og leiðinlegt, en sumir eru bara fullkomlega sáttir með það.
Sumir vilja ekki gera meira en það sem þarf til, til að komast af, fyrir þá er hægindastóllin og sjónvarpið hin fullkomna uppfining – hvað sem lætur fólki líða vel!!! 

Svo eru sumir sem vilja alltaf gera allan andskotan, með stórum yfirlýsingum, en gera svo aldrei neitt, meðan aðrir gera það sem að þeir vilja sama hvað það kostar!
Það er einfaldlega svo mikið af týpum til í þessum heimi að ómögulegt er að greina allar hliðar fólks við fyrstu kyn. Það má hinsvegar að miklu leyti, dæma karakterin við fyrstu kynni, en persónueinkenni kynnist maður alltaf seinna!
 

Sjálfsálit er einhvernvegin sterkasta tengin fólks, menn vilja frekar umgangast fólk með gott sjálfstraust, það er bara meira sjarmant, undantekningin er náttúrlega hjá fólki með láu sjálfsmati, það vill umgangast lið sem hugsar og lifir einsog það sjálft, en ekki þá sem láta þau finnast sig vera smá.

Það er ástæða fyrir því að stórt fólk fái sér stóra hunda, lítið fólk gangi með litla hunda og að ljótt fólk kaupi sér ljóta hunda.
Fólki líður einfaldlega best í kringum þá, sem minna sig á sjálft sig. 

Afbrýðissemin! Hún hefur líka mikið með sjálfstarust að gera. Sumir spila sig alltaf risastóra og sem einhverja rosa töffara sem allan andskotan geta, en við minnstu ógn eða ótta, verða sumir slegnir útaf laginu. Það má alltaf sjá, útfrá afbrýðissemi, hverjir eru öryggir með sig og hverjir eru bara að þykjast. 

Þegar öllu verður á botninn hvolft kemur í ljós að í heiminum er til uþb 6milljarðar manna, sem gerir líka um 6milljarða karaktera.

Það er til fluggáfað fólk  með lítið sjálfstraust rétt einsog að það er til nautheimskt fólk með mikið sjálfstraust - en það er þá sennilega vegna þess að það áttar sig ekki á því hvað það er heimskt. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 13:23:10 / foli

Furto d'arte

 Ciao bellissimi Belli… 

Va bene, ora ho scritto blog in tante lingue, questa volta vi scrivo qualcosa e naturalmente lo provo in italiano. Il motivo principale, perché ho deciso scrivervi qualcosa, è perché sono stato in Francia. Sono andato a una città denominata Arles.In Arles, si trova un Bar, che ha dipinto Valentina e poi van Gogh :) 

Guardate! Il dipinto dietro Stefano!!

 

 

IMG_2165.jpg picture by goormo
 
 

Dopo aver visto questo dipinto di Wale, van Gogh ha imitato, e poi è diventato molto famoso :)

 

 

Bild:Vincent Willem van Gogh 015.jpg

 Imitazione del ladro van Gogh 

 

Ultima settimana comunque, ero in questo Bar, lo ho visto per coincidenza, ed ho subito pensato alla viaCiatti!!!

 

 

 

Arles38.jpg picture by goormo
 
Arles.jpg picture by goormo

 

Non e un Bar meraviglioso, ma…… 

--- 

 

Adesso sono tornato alla Germania fredda, l’università comincia, come la routine giornaliera. Questo inverno avrà tanto lavoro, ma vengo almeno una volta per raggruppare con la viaCiatti.

A proposito, questo “viaCiatti Day” e una idea bellissima    

Se volete aggiungere commento, cliccate su “hafa sagt sína skoðun”:

„Nafn“ significa Nome
Poi scrivete tutto quello che volete.
Quando avete finito scrivere qualcosa, scrivete la cifra che vedete e “Staðfesta” significa confermare 

Adesso mi scuso per l’italiano bruttissimo, e spero di rivedervi a presto,

Ciao a tutti

Cliccare per video

 

 

StMaximin4.jpg picture by goormo
 


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 15:54:37 / foli

En France

Ég skal blogga á íslensku að þessu sinni, þannig er mál að flaug í síðustu viku til Marseille. Hér í suður Frakklandi vildi ég alltaf búa og nú veit ég afhverju. Veðrið gegjað og afslappað andrúmsloft, þar sem að það þykir eðlilegast í heimi að fá sér smá rautt, hvítt eða bleikt með hádeigismatnum, oftast bleikt meðan að það er svona heitt!

Ég er núna í bæ, smábæ að nafni Trets. Hann er staddur hérna í suðrinu, nálægt Marseille, lítill og rólegur bær, hér í nágrenninu er bær sem heitir Aix-en-Provance, það er magnaður bær. Það er ríkra manna bær, mikið snobb og sjóðandi heitar kellingar.

Á miðvikudeginum, afmælisdegi mínu fórum við snemma á fætur, og skelltum okkur til Marseille, það var skýjað er við fórum á fætur, því klæddi ég mig fremur vel, sem ég hefði betur slept, því fljótlega eftir hádegi var rakastigið og hitinn farinn að gera það að verkum að fötin fóru að klínast.

 

IMG_0014.jpg picture by goormo

 

Marseille olli mér aftur á móti vonbriðgum. Héraðið er æðislegt, en borgin sjálf er fremur skítug og með óhreinu fólki. Alltaf var ég að bíða eftir að sjá eitthvað merkilegt, höfnin átti að vera hápunkturinn en hittum við á vitlausan dag hvað það varðar.

IMG_0013.jpg picture by goormo


Hápunkturinn var aftur á mót, Notre Dame-kirkjan, þaðan var útsýnið magnað þó að kirkjan hafi svo sem ekki verið neitt stórkostleg.

NotreDamedelaGarde2.jpg picture by goormo

IMG_0062.jpg picture by goormo


IMG_0068.jpg picture by goormo
 

DerGlcknervonNotreDame.jpg picture by goormo


 Hringjarinn Ágúst

Um kvöldið var svo farið á resturant og heyrðum við hvernig lýðurinn trylltist er Marseille lagði Liverpool það kvöld.

Ok, hva’svo??

Á laugardeiginum var tekinn ganga, alvöru fjallaganga. Við ákveðum að "klífa" St Victoire, en það er hæsta fjallið í nágrenninu.

Við upphaf göngunar lítur svæðið nokkunvegin svona út:

IMG_0089.jpg picture by goormo


IMG_0098.jpg picture by goormo


ef þið lítið á seinni myndina sjáið þið Vatn, og svo í bakrunninum eitt lítið fjall og annað stærra.

við byrjum á því að labba litla fjallið.

IMG_0114.jpg picture by goormo

Þegar littla fjallið var gengið, litu hlutirni svona út, en frá litla fjallinu og er hryggur sem teygir sig að því stóra. Á næstu mynd er hryggurinn genginn og sérst hann í bakrunninum

IMG_0121.jpg picture by goormo

Þá var ekker eftir nema kletturinn - og viti menn - hann var tekin líka

IMG_0143.jpg picture by goormo

svona litu hlutirnir út á toppnum og einsog glöggir taka eftir þá er myndin tekin í yfir 1000m hæð í Október og ég er í Stuttbuxum og stuttermabol. Ekki amarlegt það

 

okokok, hvað svo. Jú, fyrir þá sem ekki vita þá er HM í Rugby í gangi og það í Frakklandi, ég verð bara að játa mér finnst þetta mögnuð grein. Á laugardagskvöld voru Frakkar að keppa í 8liða úrslitum gegn Nýja-Sjálandi en það eru Brassar Rugbysins, enginn átti von á sigri. Í fyrri hálfleik voru nýsjálendingar að rúlla yfir Frakkana, en með mögnuðum seinni hálfleik með miklu drama, snéru Frakkar leiknum sér í hag og unnu, allt ætlaði um koll að keyra og leit bærinn út eins og í sjónvarpinu. Göturnar fylltust, fólk sat á bílum á ferð veifandi fánum og dansaði nakið í vatnsbrunum bæjarins.

PartyanderRotonde1.jpg picture by goormo

Hádeigisverðurinn í dag var svo tekinn sólinni, ber að ofan, með flösku að rauðvíni. mig langar ekki beint aftur til Karlsruhe núna:)

Beggi ég veit að Bloggið er of langt fyrir þig, en þess vegna bætti ég inn fullt af myndum og þessu video af fagnaðarlátunum í Frakklandi (klikka til að sjá myndbrot)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 17:02:19 / foli

Tout à coup en français

Maintenant j'ai été dans les sud de la France pendant quatre jours. La campagne est merveilleuse, mais Marseille est merde. J'ai été très déçu par cette ville, malheureusement!!!!

Le temps a été super, et j'ai eu temps fantastique avec une personne très très proche à moi!! Pour quelle raison j'attends avec impatience d’appréciez la semaine suivante.

Je devrais m'arrêter maintenant, parce que je fais passer moi pour un idiot. je veux dire... le français horrible:)

Au revoir


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 13:27:24 / foli

Þú lítur í spegil og sérð hvað heimurinn er fallegur og góður?

 

Beggi!!! Það er greinilegt á þínu síðasta kommenti að þú hlustar alltof mikið á BillyJoel,


"Some people hope for a miracle cure
Some people just accept the world as it is
But I'm not willing to lay down and die
Because I am an innocent man"

Mannstu eftir þessu... ég veit þú mannst!! Þér fannst þetta eitthvað svo flott lína - ég veit ekki hvort þér fanst þetta svona flott lína vegna þess að Billy Joel sagði hana, eða vegna þess að það er svo lítill heimspekingur í þér???

Hvort ég sé búinn að jafna mig á þessu Chelsea-áfalli, er svarið: Nei!!
-Mér var illt í maganum á því að sjá í smettið á þessum viðbjóði sem stjórnaði liðinu í síðasta leik, hef sjaldan verið jafn sama um tap einsog eftir síðust helgi, þó svo að það haf verið gegn ManUtd, þá er þetta ekkert lið lengur.
Þessi Rússi hefur gert þetta lið að leikfangi sínu og tekið burt allan persónuleika liðsins, ég skal bara játa að fregnir síðustu viku afblámuðu á mér hjartað all svakalega.

Sá sæti farinn að taka 600kg í 4 lyftum, það er 150kg að meðaltali á hverri lyftu :whut: ertu viss um að þú sérst ekki að bulla.... eða ertu kannski jafn mikill stærðfræðingur eins og þú ert heimspekingur? :)

Annars er ég búinn að vera núna á þessari Arkitektaskrifstofu (http://www.ks-architekten.de/ ) í rúma viku, er alveg að fíla mig ágætlega, enda nýt ég fulls traust, og fæ að vinna og breyta hlutum eins og að ég vil, var til að mynda að enda við myndir af viðbyggingu Bílasölu: )

Hef ég lært ný tungumál?

Neee, ekki beint, tala enn bara 7 tungumál:

1) íslensku

2) ensku

3) þýsku

4) ítölsku

5) Dönsku

6) Tungumál Ástarinnar

7) Frönsku

En verð víst að hætta núna áður en að þú ferð að missa einbeitninguna!!!!!

Uns seinna!!!


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 07:44:37 / foli

Ég sakna'ns nú þegar....

 

Shocker!!
Já, ég varð sjókkeraður í morgun er ég opnaði SkySport og sá sorglestu fréttir sem ég hef lengi lesið. Ekki bara fyrir Chelsea, heldur Ensku deildina eins og að hún leggur sig:(

Jose Mourinho er mesti töffarri þjálfarasögunar og þykir mér brottför hans ekki bara slæm fyrir mína menn , Chelsea, heldur var Enska deildin að missa skemmtilegan og litríkan karakter.
Hann er irreplaceable og mun ég seint sætta mig við þetta!!!!

Viva Mourinho


» 13 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 07:21:43 / foli

Er soll geschlagen werden

Wie versprochen, werde ich jetzt auf Deutsch bloggen damit du verstehen kannst. Diesmal kannst du dann kommentieren und Bescheid wissen worüber:)
So...Was mach'ich gerade?


Nah, ja das Praktikum, fing mal gestern mit dem Sport an (endlich, war nämlich ein bisschen was zu einem Wichser geworden dazu habe ich mich nicht seit langem rasiert und sehe deswegen fürchterlich aus. Egal!!- zwar hab'ich angefangen das Aussehen zu mögen, ist irgendwie so RetroUrban)

Der neue Mitbewohner geht mir langsam auf die Nerven, er ist ein bisschen dreckig! Sonntag wollte ich mir was kochen, die Küche sah aber aus wie ein Saustall. "Nein" dachte ich - in so einer Schweinebuchte möchte ich nicht leben!!
Jetzt muss ich mit ihm reden, habe ich gedacht, das geht aber nicht!!!
Dann kommt er rein, und was sagt er:

Kleiner Portugiese: "du musst abwaschen!"

Ich bekam ganz schnell ein stressvolles Gefühl, wurde ein bisschen reizbar oder nervös.
Man - hätte ich ihn schlagen können..(deswegen wurde ich nervös)

Ich: Bitte was?
Kleiner Portugiese: "du musst abwaschen!"
Ich: Muss ICH abwaschen??
Kleiner Portugiese: Ja! das ist deins!
Ich: also, das geht nicht, setzt dich hin, lass uns Regeln machen.....

Ab jetzt wird es so, dass man die Küche immer nach der Anwendung saubermachen muss und teilen wir uns die Badezimmerreinigung Woche für Woche, falls er das nicht besorgen kann, werde ich ihn (und seine verfluchte Flöte) einfach hinunterspülen und eine Aufwartefrau einstellen!!

Nun freue ich mich auf die Woche, die ganz viel Sport, Konstruktionszeichnungen und französisch Abhören (damit ich dich beeindruckenkann) enthalten wird....
Was mich am meisten freut ist natürlich die Reise nach Marseille wo wir uns endlich wieder treffen können.

Mag ja sein, dass es ein bissssschen blöd ist einen  Brief zu dir aufs Internet zu stellen, aber jetzt weißt du immerhin wie du am besten kommentieren kannst..
Bis Bald


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 16:48:38 / foli

Wieder in Deutschland

Er kannski kominn tími á að blogga á ný??
Hef víst ekkert bloggað síðan 11.07.2007 16:41:36... það eru komnir tveir mánuðir síðan:o Hvað hef ég verið að brasa??

Jú, ég kom víst til Íslands í millitíðinni!! 

Ok, mánudaur í síðustu viku, var pínu stressandi, ég átti flug til Þýskalands á fimmtudeginum. En var oðrinn full stressaður þar sem að ég var ekki enn kominn með svar frá Háskólanum hérna úti!!
Því tók ég mig til og hringdi út á Arkitektaskrifstofuna, trekk í trekk, en fékk engin svör, þetta var stressandi, því skrifa ég bréf út og spyr hvernig standi á því að ég hafi ekki enn fengið nein svör, bætti svo líka við að ég hafi sent Arkitektaskrifstofu í Karlsruhe myndir sem að ég teiknaði og varð ráðin strax, en er svo látinn hanga eftir svari frá skólanum.
Ég var reyndar búinn að fá svar frá háskólanum í Köln, þar var ég boðaður í inntökupróf, á fimmtudeginum. 

Ég var í smá klemmu, langaði til Elítunar í Karlsruhe, en var ekki lengur svo viss um að vera tekinn inn, því stekk ég á það og breyti Flugi mínu einn, tveir og tíu.... flýg svo tuttuguogfjórum tímum seinna til Frankfurt. 

Ferðalagið gekk ótrúlega vel, það varð líka sannað fyrir mér að ég hafði sofið aaaalt of lítið í Íslandi, ég(sem aldei get sofið á ferðalögum) var nebbla sofnaður fyrir flugtak.

Klukkan 22 lennti ég svo í Frankfurt, hafandi ekki hugmynd um hvernig ég kæmist til Karlsruhe, gaf mér nebbla ekki tima til að athuga áður en að ég flaug!!

Gildir einu, ég hljóp til Rútustöðvarinnar, og klukkan 22:10 sé ég rútu leggja af stað, bílstjórinn sér mig koma hlaupandi með alla minn farangur, stoppar!! og ég spyr hann hvert hann sé að fara - sú rúta var víst á leiðinni til Heidelberg... “Heidelberg” hugsa ég, hljómar nokku nálægt:) stekk því uppí.  

Fljótlega eftir miðnæti kem ég til Heidelberg og sé þá, að eftir 5min fari lest til Karlsruhe :o hleyp að næsta sjálfsala, kaupi miða, og svo að spori 7, var kominn til Karlsruhe rúmlega 1, ekki slæmt það.... (Þvílíkur aragrúi af flippuðum ferðasögum sem ég er kominn með marr......) 

Allavega, til Karlsruhe var ég allt í einu óvænt kominn, herbergisfélaginn var líka hissa að sjá mig, miðvikudagsmorguninn, fer ég svo snemma á fætur og til Arkitektadeildarinnar, en það er  risastór og ísköld Draugabygging, ég labba um og reyni að finna einhvern til að tala við, en enginn var þar. Þetta var bara eins og vera í draugamynd, svo finn ég loksins Sekretaríuna, en viti menn, hún var lokuð á Miðvikudögum. Þarna kom smá tímapunktur þar sem mig langaði að gefa upp allavon, en svo sé ég hurð sem á stóð “Direktor”, ákvað bara að slá til og Banka!!!
Viti menn, ég heyri hljóð og það varð meira að segja komið til dyra!!! 

Ég á spjall með Direktornum, sem segist vilja taka mig, gat mér reynar engu lofað, en sagði að þetta lyti vel út, en sú sem sá um umsóknina mína var nebbla í fríi fram á Föstudag.... 

Mikill léttir var þetta, en nægði mér ekki, því hugsaði ég “Köln, ekki Köln???”
“Fuck it, bý til aðra ferðasögu, skelli mér í nótt til Kölnar og tek prófið í fyrramálið” - fer snemma í háttin og vakna um miðja nótt til að geta verið kominn nógu snemma til Kölnar.
Fer á innanbæjarlestastöð og ætla að taka „Staßenbahn“ upp á aðalallestarstöð, var mættur tímalega, samt ekki nógu tímalega, því innanbæjarlestakerfið var ekki jafn þétt og mig minnti, því hleyp ég aftur heim til að ná í hjólið, viti menn... ég braut lykilinn í lásnum – og hef ekki enn náð honum út. Þetta leiddi bara til einnar hugsunar  “OK, mér er ekki ætlað til Kölnar, verð að treysa á Karlsruhe”
 

Föstudag hitti ég aftur Direktorinn með hressandi skemmtilegum fregnum, ég er tekinn inn þarf bara að standast DSH-Prófið (Þýskuprófið;) og þá get ég skráð mig.

Í gær tók ég þetta próf, það stóð yfir í 5klukkutíma, en ég er ekki í nokkrum vafa að ég hafi staðist, eða í hreinskilni gerði ég miklu betur, ég spændi því upp, þetta var eins og að senda fullorðinn man í grunnskóla. Því bíð ég bara eftri niðurstöðum, formlega innskráningu og skólinn hefst um miðjan Október, fram að því vinn ég á Arkitektaskrifstofunni (byrja á morgun) skelli mig á Bjórhátið og jafnvel einu sinni til Frakklands... Schön!!! 

Allavega, einn glaður biður að heilsa!!!  


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 16:41:36 / foli

Halööchen

:):):)Ég læt ykkur ekki lengur vita hvað er í gangi hjá mér...það er bara svo mikið að ég nenni ekki að skrifa það niður, segji ykkkur bara frá því þegar að ég loksins kem heim í Haust:):):) En ég hef haft aaandskotanum nóg að gera, allt fer senn að róast og fæ ég vonandi senn normal hjartslátt á ný, held að síðustu 8vikur hafi stytt líf mitt um 3mánuði eða svo......Verður gott að komast heim, og slappa af, jafnvel með smá aðstoð frá herra aðstoð ChivasRegal :) In any case, hér fer loksins hitinn að koma til baka, spáð rooosahita yfir helgina og eitthvað fram í næstu viku, næ ég kannski að tana pínu... Annars er af mér að frétta að ég lít býsna vel út þessa daganna, frískur að sjá og óvenjumeyndarlegur, þá er nú mikið sagt, ekki skemmir fyrir að hitin á að fara nálægt 40°C á sunnudag og mánudag, þannig það verður fróðlegt að sjá hvernig fer þegar að tanið er komið á þennan skrokk...mjááá.....   Allavega, það er orðið greinilegt að það er ekki hollt fyrir skrölltorma eins og mig að blogga, þegar að þeim er létt..... Heyrumst seinna, sjáumst senn.....  

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 15:36:50 / foli

Innihaldslaustblogg

Hitinn er skollinn á og þá kviknar í El Gusto.Búinn að skrifa lögfræðingnum, búinn að sitja við tölvu allan dagin alla daga(Umsóknir, fyrirlestrar og fl.), í 2ogHálfa viku, ekki skrýtið að marr bloggigigi!!  Reyndar hef ég svo sem ekki mikið að segja, veit heldur ekki hvað gæti verið svona hrikalega spennandi:)United styrkir hópinn, Chelsea-menn farnir að nota “ContractStatus:Expired” takkan í Manager. Island komið á EM og ....og....ég er svangur! Uhhhhm....... skólinn gengur, ahhhh... þarf að taka slatta af inntökuprófum, mhhhhh... stefni á að koma á klakann mánaðarmótin júli/ágúst, tjahh... er að vinna í því að fá ítalina á klakan í sumar, mikil löngun til þess þar á bænum...... og ...... já innihaldslaust blogg. BEGGI, ég veit þú þvælist um á Krit, en ertu til í að skrifa ljóð eða’eikka, var nebla góð hugmynd frá Krissanum.. Æi, nennu þessu ekki, þarf að fá mér að borða:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 12:30:46 / foli

Draumar og Lögfræðingar

Hvað er málið? Afhverju gerum við okkur þetta?

Öll sömul lifum við mjög yfirborðskendu lífi!

-Keyrum flottum jeppum, kaupum stór hús með flottri eldhúsinnréttingu. Fallega eiginkonu (eða náttlega) eiginmann, 3 börn sem öll eru íþróttaiðinn og fá góðar einkannir.
Ef þetta er staðreyndin, þá lítur maður býsna vel út og þar af leiðandi er maður “hamingjusammur”.

 

Ég meina ég er einginn undantekning á reglunni, ég er ekkert öðruvísi;
minn draumur hefur alltaf verið sá, að eiga fallegt strandhús við Frönsku-Rivíeyruna, keyrandi Jagurar “69 blæjubíl (svona: "ég keyri flottum bíl- samt ekki með lítið t***i" - bíll), eiga Ítalska eiginkonu, dökkhærða með brún stór augu og vel vaxin, með henni dreymdi mér fjögur börn, sem ganga í skólan á daginn á meðan að ég hanna byggingar í skrifstofu minni í Mónakó, svo er ég kæmi heim gæti ég farið í fótbolta á ströndinni með syni mínum þrem, á meðan “Monica” gerir eitthvað með dótturinni.

 

OK, ekki týpíski íslenski draumurinn, ég veit – hinsvegar draumurinn minn..

 

Myndi þessi skylirði gera mig hamingjusamman, eða myndi það bara færa mér gleði að geta sýnt fólki mínu á Íslandi hvað ég hefði það gott í suðrinu-

 

Jú sennilega yrði ég ánægður með að hafa náð að uppfylla draumum mína – en hver yrðu markmið mín þá. Sennilega að bíða eftir að synir mínir myndu verða Heimsmeistarar með Ítalska landsliðinu, og að þeim hafi verið hrósað sem bestu mönnum mótsins af þáverandi  þjálfara Allesandro del Piero…

 

 

Þið haldið sennilega á þessu bloggi að ég sé sokkinn í djúp þunglyndi með miklum pælingum!! Reyndar er það nú ekki staðreyndin, þetta er bara það fyrsta sem kom upp í hugan er ég hóf að skrifa.. Jú vissulega er nýr kafli að hefjast í lífi mínu, en ég er spenntur og hlakka til þess að taka á nýjum málum, nýtt Challange!!

 Annars er það helst að angra mig að hafa ekki fengið nein komment á myndunum frá Ítalíu. Eða to be honest, þá er annað að fara gjörsamlega með magan á mér núna, Líkamsræktarstöðinn er búinn að senda lögfræðing á mig :o

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 14:26:21 / foli

ciao

 

opnið vinsamlegst linkinn

http://www.blog.central.is/italianstallion


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4